,,Þú hýri Hafnarfjörður’’
Greinin birtist fyrst í Fjarðarfréttum 16. apríl 2026
,,Þú hýri Hafnarfjörður,
sem horfir móti sól.
Þó hraun þín séu hrjóstrug,
er hvergi betra skjól.’’
Svo orti Guðlaug Pétursdóttir við lag Friðriks Bjarnasonar árið 1938, en Þú hýri Hafnarfjörður, hefur löngum verið talinn héraðssöngur Hafnfirðinga. Þó að orðið hýr hafi öðlast aðra merkingu í dag er lagið samt einstaklega fallegt og hvet ég Hafnfirðinga til þess að kynna sér það nánar.
Hafnarfjarðarkaupstaður, eins og bærinn okkar heitir í fyrirtækjaskrá, fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908. Á þeim tíma var bærinn okkar ekki stór, það var ekki einu sinni komin höfn í bæinn en fyrsta bryggjan var tekin í notkun árið 1913.
Það var ekki fyrr en seinni hluta síðustu aldar sem að framtakssamt fólk fór að líta út fyrir miðbæinn. Síðan hefur íbúafjöldi bæjarins margfaldast, hann teygir sig nú yfir þrjú póstnúmer (220, 221, 222) og hýsir rúmlega 30.000 manns, um 28.000 fleiri en við stofnun. Í dag eru í Hafnarfirði ellefu grunnskólar en voru tveir árið 1960. Sá tólfti er í byggingu. Nítján leikskólar eru í bænum, tvö hjúkrunarheimili, tvær heilsugæslur, fimm kirkjur (Þjóðkirkjan x3, Fríkirkjan og Klaustrið), en því miður engin fæðingardeild eins og var hér áður.
Þann 16. maí næstkomandi fá bæjarbúar tækifæri til þess að ákveða hvernig sagan næstu fjögur árin verður skrifuð. Þá þurfum við að hugsa: Hvernig Hafnarfjörð viljum við eftir fjögur ár?
Mörg stór verkefni blasa við. Ber þar helst að nefna byggingu nýs Tækniskóla; uppbyggingu í Áslandi 4, Hrauni vestur, Hamranesi og á hafnarsvæðinu; ásamt tilheyrandi innviðum.
Komandi stjórn bæjarins þarf einnig að taka afstöðu til ýmissa mikilvægra mála. Hvernig viljum við haga húsnæðismálum fyrir íþróttir og menningu í bænum? Hvernig á frístundastyrkurinn að vera? Hvernig getum við bætt þjónustu við bæjarbúa, bæði unga og aldna? Klassísk bitbein eins og skipulagsmál, samgöngumál og rekstur bæjarins láta ekki heldur sitt eftir liggja!
Sama hvað liggur þér mest á hjarta, ætla ég að hvetja þig, lesandi góður, til þess að kjósa með hjartanu í komandi kosningum. Óháð því hvað verður fyrir valinu hjá þér, munum við í Viðreisn standa vörð um þína hagsmuni og framtíð Hafnarfjarðar!
Höfundur er nemi á lista Viðreisnar í Hafnarfirði í kosningunum 16. maí 2026
Fyrir forvitna er hægt að lesa um sögu Hafnarfjarðar á: https://hafnarfjordur.is/mannlif/menningararfur/saga-hafnarfjardar/
Sögu Hafnarfjarðarhafnar má nálgast á: https://hafnarfjardarhofn.is/hofnin/sagan/

